Hefurðu einhvern tímann hlustað á annað rapp heldur en 50 Cent og Nelly hálfvitana? Hefurðu einhvern tímann hlustað á textana hjá ALVÖRU röppurum eins og Rakim, Slick Rick, Nas, Necro, Pharcyde eða Gang Starr? Efast um það ef að þú kallar rapp rusl. Kannski fílarðu ekki músíkina en það er heimskulegt að kalla allt rapp rusl án þess að vita sjitt um það. Ég fíla alveg rokk og rapp bæði en mér finnst þeir heimskir sem að segja skoðun sína á máli sem að þeir vita ekki bofs um. Allt í lagi að fíla ekki músíkina en ekki alhæfa það að allt rapp sé rusl nema þú vitir eitthvað um það. Kannski ég fari bara að kalla þig nörd með bólur án þess að vita neitt um það. Ég er ekki að kalla þig það. Ég veit ekkert um það. Þetta var bara dæmi.