Þetta er reyndar rétt hjá honum…
Maður sleppur við að eignast börn og smitast af kynsjúkdómum við það að stunda ekki kynlíf.
Annars þá er nú þegar skírlífi mikið algengara í Bandaríkjunum en t.d. á Íslandi. Sérstaklega í suðurríkjunum.
Hafið þið ekki tekið eftir því að oft í kvikmyndum þá eru ungar stelpur alltaf að reyna að halda í meydóminn eins lengi og hægt er, og helst eftir hinum “eina rétta” og jafnvel til hjónabands. Algengast í þessum týpísku smábæjum þar sem fólk fer í kirkju á hverjum sunnudegi. Gaman líka að nefna það að Britney Spears er einmitt frá svona trúuðum sveitabæ.
En nei ég er ekki sammála honum í þessum málum, mikið betra að hvetja unga fólkið til þess að nota getnaðarvarnir og/eða vera í föstum samböndum í staðin fyrir skyndikynni.