“Ungur drengur gekk að mér um daginn og horfði á mig undarlega. Ég sá að hann hafði illt í huga, hann hafði augljóslega verið heilaþvoinn af Grand Theft Auto og ætlaði sér að ráðast á mig. En ég sá við honum, ég er stærri og sterkari enda fullvaxin kona og sprautaði þess vegna piparúða í andlitið á honum og hljóp í burtu. Síðan kom pabbi hans að mér og beitti mig munnlegu ofbeldi. Kallaði mig brjálæðing.
”
Þegar ég las þetta sprakk ég úr hlátri.
Ef höfundur var virkilega að meina það sem hún sagði þá er hún virkilega skemmd.
Svo gæti þetta náttúrulega líka verið kaldhæðni og mér finnst það líklegast.
En sama hvort það er þá leiðir það aðeins til einnar niðurstöðu: San Andreas rúlar!