Friðargæsluliðar Íslands
Afskaplega finnast mér þeir ósmekklegir friðargæsluliðarnir sem særðust í Kabúl. Ég veit ekki hvort það er eftirsjokkið af því að lenda í svona árás sem veldur því að þeir láta taka af sér myndir í bolum sem á stendur “Chicken Street - Shit happens”, drekkandi öl, glaðir í bragði. Auðvitað eru þeir ánægðir að vera á lífi, en það væru líka 11 ára afgönsk stelpa og 23 ára amerísk kona ef þeir hefðu ekki verið að flækjast inn í Kabúl, á Chicken Stræti, stað sem er á bannlista, TIL ÞESS AÐ KAUPA MOTTU!!! Ég geri mér grein fyrir því að yfirmaður þeirra sem var í klukkutíma að ákveða hvernig mynstur ætti að vera í mottunni sinni ber mesta ábyrgð á þessu, en mér finnst samt sem áður að þeir sjálfir hefðu getað sýnt þeim sem dóu meiri virðingu en að mæta svo í bolum með svona áletrun við komuna heim í Leifsstöð.