“Nei, ég ætla ekki að hætta því. Því þetta er merkilegt. En samt er þetta ekki ótrúlegt því Quarashi er náttúrulega besta hljómsveit sem er á þessu landi.”
Er þetta þriðji eða fjórði pósturinn um þetta hræðilega leiðinlega lag?
Besta hljómsveitin? Hah, textinn hjá þessum guttum er álíka góður og hjá Leoncie(kannski ekki alveg).
Að mínu mati er Maus, besta hljómsveit Íslands.
Svo finnst mér líka íslenskt rapp alveg hræðilegt, eins og þessir smástrákar hérna á landinu geti ekki samið betri texta en “mamma mamma þín, mamma þín”.
Btw, svo þegar þessi svokallaði “Tiny” fer í mútur þá verður hann varla svo rosalega góður rappari, er það nokkuð?