Eiga stelpur að fá bílpróf á undan strákum? Hvað finnst ykkur?
Ég er að fara að halda ræðu þar sem ég er á móti þessu málefni og ég væri mjög þakklát að fá að vita ykkar álit.
Rannsóknir sýna það aftur og aftur að konur ná þroska fyrr en menn og því er þessi umræða í gangi að konur fái réttindin fyrst.
Svo er það líka svoleiðis að karlar eru mjög oftar valdurinn á alvarlegum slysum meðan konur eru í svona þessu minni alvarlegu. Samt eru konur alveg í rosalegum meirihluta í að bakka á eitthvað.