Helvítis Djöfull… Nú er sá tími kominn að mig langar að myrða eitthvað! Ástæðan; Það snjóaði. Lítið kannski, en það sást. Og ég hata snjó. Svo er líka svo helvíti kalt úti núorðið.
Ég er kannski ekkert sáttur við snjóinn en ég kann að venjast því annað en sumir sem búa til milljón nöldur um sama snjóinn!!!!!(nú eru fimm upphrópunarmerki)
Ég held það sé óþarfi að æsa sig yfir því. Þetta var nú líka einn af fyrstu korkunum sem var gerður um þetta mál. Þessir ‘sumir’ sem þú talar um eru bara notendur, sem þekkjast ábyggilega ekki mikið innbyrðis, sem eru að gera korka um sama málið. Vona að þetta sé ekki eitthvað samsæri gegn þér.
Ég vil ekki venjast snjónum, því að ég held ennþá í vonina um að hann hverfi fljótlega og komi aftur 1. des. :)
já, ég hefði ekkert á móti því, en málið er að það kemur aldrei þannig snjór strax… núna kemur bara rétt snjór til að gera göturnar gráar og mig pirraðann, en aldrei nóg til að maður komist á snjóbretti. Þú skilur ;)
Ég elska snjóinn og kuldann, þá er svo notalegt að fara út og koma sinn í hitann og það er æðislegt ef það snjóar….ég hef bara áhyggjur af því að það verði enginn snjór seinna í vetur út af því að hann verður allur búinn miklu fyrr, en það er vonandi bara vitleysa!:D…..svo er líka æðislegt þegar að það er hægt að skeuta á tjörninni!:D:D….
Afsakið allar stafsetninga villur eða misskilning á svarinu
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..