T.d. Ég bara skil ekki til hvers að hafa einhvern sjónvarpsþátt um Nylon ég meina, nokkrar 9 ára stelpur sem horfa á þetta! Og hver nennir virkilega að hlusta á hvernig hárgreiðslu stelpurnar í Nylon fá sér?? Ég var að bíða eftir einhverjum þætti á Skjá einum og kom ekki brot úr þessum nylon þætti, ein að tala um að hafa fengið “stjörnu” í hárið og eitthvað kjaftæði. hnuss. Svo ekki sé talað um helvítis stjörnustælana! Við búum á litla Íslandi þær láta eins og við séum í Hollywodd, ég heyrði frá vinkonu minni að þær væru meira að segja búnar að fá sér lífverði! lífverði! ég bara gat ekki hamið mig fyrir hneykslan. Og þær eru meiri gelgjur en vinkonur mínar þá er sko mikið sagt ;) Svo eiga þær hvað, 1 “vinsælt” lag en samt halda þær að þær séu besta hljómsveit í heimi…þetta er með ólíkindum hvernig fólk hugsar :) svona getur maður haldið áfram endalaust ;) en sjónvarpið kallar!