Ég varð virkilega reiður á köflum. Það náði þó hápunkti þegar augljóslega var brotið á Eið Smára, ekkert var dæmt, og Ungverjarnir komu boltanum fram og í kjölfarið fylgdi 2. mark þeirra.
Mér fannst ótrúlegt að nr. 8 hjá Ungverjum hafi hreinlega náð að klára leikinn. Ég er nokkuð viss um það að þessi dómari yrði sá eini af 100 dómurum sem ekki hefði rekið hann út af. Maðurinn komst upp með fáránlegustu hluti, hrein og klár ásetningsbrot trekk í trekk sem verðskulduðu ekkert nema spjald.