Þetta hefur komið nokkru sinnum á síðustu tvemur árum, að allir (skrítna er að NÆSTUM því allir) detta útaf MSN Messenger! Gerist ákaflega sjaldan en gerist samt á nokkura mánaðar fresti… venjulega verð ég fórnalamb þessara hræðilegu örlaga en þarf sem betur fer ekki að bíða lengi eftir að komast aftur!

Núna rétt áðan (tekið með tilliti til tímasetningu pósts) duttu næstum því allir útaf MSN hjá mér en ég hélst inná! Þvílíkt flóð svo á sama tíma af fólki sem kom inná! En það skrítna er að sumir héldu áfram að detta… aftur og aftur, þangað til að þeir bara komu ekkert aftur!

Hefur einhver annar lent í þessu?