Hehehe.. Awww :)
Á ég að segja þér sögu sem ég er búin að vera segja öllum út af mér finnst hún svo fyndin? :)
Sko klukkan 5 í nótt fattaði ég eitt, Hljóp heim til mín á töfflum (svona inniskór með blómum á, sandalar eða eitthvað og náttbuxum, reyndi að opna en það var læst! Dinglaði, enginn kom.
Vissi ekki hvurn fjárann ég átti að gera og fór bak við hús, ég á töfflum og náttfötum að kafa í einhverjum snjósköflum og reyndi að opna hurðina bak við, gekk ekki, reyndi að banka á gluggann bróður míns, virkaði ekki.
hljóp aftur í gegnum snjóinn og klifraði yfir grindverk, dinglaði aftur, virkaði ekki, tók kúst, dró gardínurnar í herberginu mínu upp og reyndi að taka það sem var á náttborðinu og henda því á gólfið og taka heimilsissímann og láta hann í rúmið eða gólfið með kústinum.. Sá ekki neitt og það virkað iekki nema ég henti öllu sem var á náttborðinu mínu á gólfið og það brotnaði flest allt!
Fór aftur heim til vinkonu minnar,læddist upp og það duttu klakar alveg úr náttbuxunum mínum og tærnar á mér FROSNAR og bláar og ég nörtraði alveg!