Ég hvet þig nú bara til að hætta þessum lágkúru fleimum og í staðin að ýta á að það verði komið upp formlegri útskýringa síðu/pistli fyrir öll þessi þúsund sem stöndum agndofa yfir þessari verðskrá, og skiljum ekki afhverju það virðist vera ómögulegt að lækka þetta eitthvað nær krónunni.
Þú segir það sjálfur, sumt fólk nær þessu ekki… og hverjum er það að kenna? Jú, fyrirtækjunum sjálfum sem leggja ekki fram þessar tölur og/eða útskýringar, þótt svo að það sé gífurleg eftirspurn eftir þeim. Er ekki alveg eins gott að leggja öll spilin fram og sýna hversu rétt þið hafið fyrir ykkur? Eða hvað…
Ekki það að það sé vert að vera ræða þetta við þig, þar sem þú ert líklegast vægast sagt hlutdrægur þegar kemur að þessu máli.