Ok, ég skal hafa það í huga næstu árin, að þegar sonur minn braggast og stækkar, þá má ég aldrei hjálpa honum að pissa. Læt hann frekar gera þetta sjálfur án leiðsagnar, og svo má hann þvo fötin sín sjálfur líka.
Hvað er svona mikið að þessu? Þetta er eðlilegasti hlutur í heimi, að móðir hjálpar barni sínu að pissa.
Hvurslags brenglaði hugsunarháttur er hjá fólki nú til dags, að það má ekki einu sinni sjást í móður hjálpa barni sínu að pissa, að fólk fer að hugsa eitthvað pervertískt og brenglað?
Hvað kemur annars uppí hugann hjá ykkur þegar þið sjáið konu gefa barni sínu brjóst?<br><br>-
Ég hata undirskriftir….