Ha Nemesis? Eru þau auðvitað ekki vanabindandi ef þau eru leyfð? Það er nú meira kjaftæðið. Þá væri lyfjamarkaðurinn frekar fábrotinn, tala nú ekki um gos- og drykkjarmarkaðinn líka. Sem sönnun get ég boðað þig á heimili ömmu minnar annað kvöld. Hún tekur inn svefnpillur á kvöldin því að hún á erfitt með svefn á næturnar. Hún hefur tekið þær í það langan tíma að skammturinn hennar hvert kvöld stækkar smám saman. Nú hefur læknirinn neitað að skrifa lyfseðil fyrir öðrum skammti fyrr en hann telur tímabært, þar sem að hún hefur verið að taka inn meiri lyf en ráðlagur dagskammtur gerði ráð fyrir. Því óskar hún nú eftir svefnlyfi afa míns, en hann þverneitar, svo nú ráfar hún um húsið á næturnar og heldur mér vakandi. Þar hefuru það.<br><br>__________________________________________________________________________________
<b>“Og það skal þá standa að Davíð Oddsson sé slík gunga og drusla að hann þori ekki að
koma hér og eiga orðastað við mig.”</b> -<b> SJS</b>
- <a href="
http://grondal.blogspot.com"><b>grondal.blogspot.com</b></a