Ótrúleg, afbrýðin útí hann. Hann er kaldhæðinn, hefur platað alla uppúr skónum margsinnis, skrifar góðar greinar. Þetta er módel-hugarinn…
En einn daginn varð einhver pirraður útí hann, og hann bjó til kork með titlinum “HrannarM”.
Eins og gengur og gerist með huga, þá hermdu allir eftir þessu uppátæki, og svona sjö aðrir korkar komu sama daginn, og síðan þá er a.m.k. einn korkur á viku, og þar af leiðandi hafa hugarar einfaldlega sameinast um hatur á þessum dreng.
Skiljið þið ekki að hann og við öll sem stöndum fyrir utan við þetta hlæjum? Þetta er fáránlegt, að eyða allri þessari orku í að vera pirraður á netnotanda á huga.is.
Einbeitið ykkur að einhverju öðru. Skrifið góðar greinar. Stingið uppá góðum áhugamálum… gerið eitthvað gott fyrir vefinn, og leiðið HrannarM bara hjá ykkur ef hann fer svona í taugarnar á ykkur.<br><br><font color=“gray”><i>Það er þéttur melur hann sjelli
hann þeytist með alls konar sprelli
Um helgar hann fer
út að skemmta sér
og er duglegur að fá sér kjelli-
ngar.</i>
<b>-Hvurslags</b>
<a href="
http://static.hugi.is/video/stuttmyndir/MATRIX_2.MP4">Fylkið Endurhlaðið: Íslensk Matrix paródía, spilast með Quicktime</a></font