Það er ekki allt sem sýnist og leiðist mér að tilkynna þér Glaurung að það er ekki HrannarM sem er yfirmaðurinn, hann er einungis “Gobbels” í þessum málum. Shelob og BudIcer eru SS hermennirnir (eða herhundarnir) en núna ætla ég að afhjúpa Hitlerinn sjálfan.

Þetta byrjaði allt er ég las þennan kork, og þrátt fyrir að ég bjóst við því að Shelob hafi fengið nóg af kúgun síðan seinast (Muerte, Necro *blikk* *blikk*) en nei… hann hefur einungis fengið nóg af því að vera fórnarlambið, það er ástæða hans fyrir þessu öllu saman.

OG hann hefur loksins ef svo má segja, komist í rétta félagskapinn því Jreykdal, HrannarM og “leynimeðlimurinn” eru ansi nálægt því að ná yfirtökum í öllum heiminum.

Þeir hafa fjármagnað þetta með bolaframleiðslu, dreifingu á austurlenskum gosdrykkjum og hátíðnihljóðum sem smátt og smátt breyta heilastarfsemi manna.

Hver gæti fundið upp á svona heilabylgjudóti, auðvitað enginn annar en kolspillti, geðveiki geðsjúklingur með ofur-heilan Jreykdal.

HrannarM sér um að þyrla ryki í augu náungas, og er andlit verkefnisins. Sjálfur leiðtoginn er enginn annar en … wait for it.

<b>Mal3!!!!!</b>

Hvernig fæ ég það út? Það er von að þú spyrjir… Þegar ég var að grennslast fyrir um HrannarM og Jreykdal sá ég helling af dulkóðuðum skilaboðum sem voru stíluð á Mal3, tilviljun hugsaði ég fyrst. Hann er nú einu sinni Stjórnandi á eitthverju áhugmáli, en svo las ég greinarnar hans og hann hefur greinilegan áhuga á spunaspilun…

Allir vita hvað það þýðir. DJÖFLADÝRKUN. Þaðan kemur þetta allt, hann hefur svo talað við Jreykdal og mútað honum til að finna upp hátíðnubylgjutækið þarna, breytt bylgjunum til að ná yfirvöldum á honum sjálfum og þaðan af HrannarM. HrannarM stjórnar auðvitað hundunum Shelob og Budicer…

En allir svara þeir til <b>Mal3</b>. Sem er forsprakki allrar illsku á huga. Treystið mér…

og gangið í her hina réttlátu… Burt með harðstjórn <b>Mal3</b>.