Ég var á leiknum áðan (þeir sem vita ekki hvað ég er að tala um eiga ekki skilið að lifa) og það var ekkert smá fyndið að í hvert sinn sem Kahn fékk boltann var púað þvílikt mikið á hann. Maður skildi þetta eftir rifrildið við Heiðar Helgu (allir hrópuðu Heiðar Heiðar) en fyrir það?
Þótt maðurinn sé hrokagikkur veit ég ekki hvað er verið að tala um. Og ekki hef ég ennþá séð neitt niðrandi sem hann sagði um Ísland..
Maður beið eftir því að hann myndi springa og senda fólkinu löngutöng :P
En annars geðveikur leikur. Besti leikur landsliðsins sem ég hef séð.
Svona til gamans má geta að ef Atli hefði ekki verið svona ömurlegur að þjálfa og við hefðum fengið þótt ekki væri nema 2 stig frá skotum værum við nánast pottþétt áfram. Það er þvílíkur skandall að tapa báðum leikjunum á móti þessu liði eins og þeir spiluðu illa.
En aftur á móti voru þeir góðir á móti Þjóðverjum í jhafnteflisleiknum.
En annars ÁFRAM ÍSLAND!!!<br><br>Þetta er stolin undirskrift