Umm.. það voru nú lítil meiðsli, en örugglega sá svakalegasti sársauki sem ég hef lent í… ég er mjög einhverf manneskja að eðlisfar og ég var semsagt inní herberginu mínu og var að hlaupa út úr því (fyrir svona 2 árum eða eitthvað. Og rúmið er mjög nálægt hurðinni, og ég hljóp af fullum krafti á rúmið, með hnéð á svona horn og enda.. og ég svoleiðis hágrét í 2 klukkutíma stanslaust.. ég man hvað það var ógeðslega viðbjóðslega vont, og svo var ég orðin öll blaut í framan og á hálsinum og bolnum af tárum. Ég sem græt ekkert rosa mikið eða lengi (eða hátt) gjörsamlega HÁöskraði..! Það var mjög…. ja… sérstök reynsla.
Svo í smíðatíma gerðist það næstsársaukafyllsta, ég var með hendina á smíðaborðinu að kjafta við einhverja krakka og það var svona þvinga sem er hluti af borðinu og ég var með hendina (handarbakið einhvernveginn) og svo allt í einu þá finn ég einhvern rosalegan sársauka og eitthvað og held það sé að líða yfir mig, ég fatta ekki einu sinni hvaðan verkurinn kom, svo horfði ég á skinnið á handarbakinu fast við borðið.. þá var ein stelpan búin að þvinga það við einhvernveginn án þess að fatta það.. Og hún flýtti sér að losa það og ég öskraði eitthvað smá.. svo fór hún með mér fram á klósett að láta renna kalt á og sárið var svo ógeðslegt og það kom fullt af blóði og ég var að reyna að þurrka það og ég skalf öll, en ég var í einhverju hormónaflippi þannig að ég skellihló allan tíman og hafði ofsalega gaman af þessu, ég hló með ekkum alles. Mig langaði ótrúlega mikið til að grenja.. En ég bara hló, og aumingja stelpan horfði á mig og var voða sár yfir að hafa meitt mig og hélt ég væri eitthvað brjáluð.. ég hef aldrei skellihlegið eins hátt á ævinni, eða brosað jafn mikið..! Án efa með því skemmtilegasta og eftirminnilegasta sem hefur komið fyrir mig á minni stuttu ævi.
En ég hef aldrei lent í neinu alvarlegu .. minnir mig :S Ég á fjóra eldri bræður sem eru frekar fyrirferðamiklir þannig að það getur allt hafa gerst. Einhverntíma var ég jú út í fótbolta þegar ég var svona 4ra ára með bróður mínum sem þá var 12 og vinum hans, og svo missti ég meðvitund og fékk heilahristing og eitthvað.. mamma sagði mér frá þessu..
Tilvitnun:
…Tell me Harry, what exactly is the function of a Rubber Duck??…
-Mr. Weasley
Áhugamál sem ég styð:
Leiklist!
Skjár Einn!
Dót!
Vinna!
Heimstónlist!!
Ég ELSKA Eurovision, Áfram Ísland! .. og Finnland!!