Satt er það minn kæri Hvurslags. Eftir brotthvarf þitt hefur myndast mikil ólga hérna. Ef þessari óöld fer ekki að ljúka fljótlega tel ég mjög líklegt að ég fari að fá skilaboð frá “gröðum 12 ára strákum” sem vilja bjóða mér í Hugasex. Einnig gæti hugsast að smástelpur færu að senda þessi klassísku “Hæ ask?” skilaboð.
Hugi.is er á hraðri leið til andskotans. Ef við, hinir gamalreyndu Hugarar, reynum ekki að taka á þessu stjórnleysi, sem gengur nú yfir, sé ekki neitt annað í stöðunni en að við töpum þessu “litla” samfélagi okkar í hendur skæruliða internetsins, spammara og þursa.
Ég vona að ég fái gamlar Huga kempur með mér í lið til þess að Hugi.is tapi ekki andlitinu og verði ein allsherjar smágelgju samkunda.
Sameinaðir stöndum vér, sundraðir við föllum!<br><br>Daywalker
<a href="
http://www.hugi.is/forsida/bigboxes.php?box_type=skilabodaskjodan&page=new_msg&to_user=daywalker“> Skilaboð </a> | <a href=”mailto:arnar@sel.is">Póstur</a> | <b>MSN:</b> arnar@hotmale.com