Mér er farið að blöskra hve margir eru með hreint út DÓNASKAP og EYÐILEGGJA umræður.

Hvað er að hjá þessu fólk eiginlega. Maður er nánast alveg hættur að koma hér inn vegna þess að maður kannski er að lesa áhugavert efni og t.d ef einhver kemur með spurningu sem hann vill fá svar við þá eru þessir DÓNAR komnir með rugl og þruggl.

Persónulega mundi ég vilja að Hugi.is væru hreinsaðir af svona mönnum. Þetta virðist vera sömu týpurnar aftur og aftur og aftur. Er ekki hægt að banna þá ?

Með von um skemmtilega umræðu og þið dónapúkar verið úti.

<br><br>Svo mikið voru mín orð
Takk fyrir

=====================
Með URR-andi kveðju:
Seppi
=====================