Já, eyru þessi urðu víst að umtalsefni heima hjá mér á kosningakvöldið, þegar Davíð var að tjá sig um fyrstu tölurnar á stöð tvö. Við skulum láta það nægja að maður skilur afhverju hann velur sér þessa hárgreiðslu. Benti einhver á að eyrnasneplarnir einir saman væru á stærð við eyra. En það er víst ekki allslæmt að vera með svona stór eyru sérstaklega ef þú lítur á þá staðreynd að Davíð heyrir í raun allt, og ekkert fer framhjá honum, nema auðvitað að það komi aftan frá, þá heyrir hann ekki neitt.
Nei,nei við skulum ekki festast í svona umræðum því að þær, eins og margt annað, eru víst betri í hófi.<br><br>——————————
ruglubulli 2003
,,Hvað er þetta líf sem allir virðast eiga en enginn notar?"