Ég veit bara að hann er frægasta nörd í heimi, algjör steríótýpa af nördi, spurði til dæmis allar stelpur sem hann var að deita hvað þær hefðu háa meðaleinkunn í stærðfræði og vildi ekki deita stelpur sem höfðu lága meðaleinkunn þegar hann var yngri.
Very weird….
Fyrir að vera ríkur er hann samt aðallega skrýtin með það að hann gefur 20% af innkomu sinni til góðgerðarmála, og meira er talið, og hann gefur mjög reglulega hundruðir milljóna dollara í góðgerðarmál. Hann hefur líka lýst því yfir að þegar hann deyr muni næstum ALLAR eigur hans renna til góðgerðarmála, fjölskyldan hans á bara að fá pínulítinn hluta, fátækir og þurfandi næstum allt.
Það er talið að í framtíðinni verði Gates ekki minnst sem einhvers voða tölvukalls, þar sem afrek hans á því sviði kunna að vera afar ofmetin, heldur fyrir framlag sitt til góðgerðarmála, sem er kannski einsdæmi og verður enn meira þegar hann deyr og fátækir fá næstum allt.
Hann lifir annars frekar venjulegu lífi og lítið um skemmtanir og kavíar, er vinnusjúklingur og eyðir mestu af degi sínum vinnandi, svo hann er ekki að eyða miklu af þessu sjálfur, svo fátækir og slíkir geta verið vongóðir þegar hann deyr og þeir fá þetta allt saman.