Ástæðan sem forráðamenn kvikmyndahúsa gáfu fyrir hækkunum á miðaverði á sínum tíma var að dollarinn væri svo hár, og það var rétt, dollarinn fór upp í 112 krónur á tímabili og því var rík ástæða fyrir þessu miðaverði.
En nú stendur dollarinn í tæpum 77 krónum, hefur lækkað um 31% síðan hann var hæstur en ekkert bólar á verðlækkunum.
Sýnum vilja okkar í verki og sleppum því að fara í bíó dagana 13. - 23. febrúar, sýnum að við séum ekki sátt við þetta verð og krefjumst úrbóta.
Að sjálfsögðu fellur þetta “verkfall” niður ef miðaverð lækkar á tímabilinu.<br><br>-
Skoðanir Octavo eru hans eigin og gætu því stangast á við skoðanir annarra á Huga. Þér er velkomið að:
• Vera sammála honum
• Vera ósammála honum
• Láta sem þú sjáir hann ekki
• Fara í fýlu
Skoðanir Octavo eru hans eigin og gætu því stangast á við skoðanir annarra á Huga. Þér er velkomið að: