Það sem þú gætir gert er að bjóða húsfélögum ódýra þrifþjónustu. Ryksuga, skúra, pússa hurðarnar og allt annað sem þarf að gera. En þú þarft þá líka að vera duglegur og mæta í hverri viku(flest húsfélög þrífa einu sinni í viku) Einnig gætir þú boðið fram þjónustu við að moka snjó(ef það færi nú að snjóa).
Látum okkur sjá, þú gætir hengt upp auglýsingar þar sem þú býður fram hjálp þína við flutninga, garðvinnu, og fleira.
Það er erfiðast að koma sér af stað. En mundu að maður þekkir mann og ef þú stendur þig vel þá mun nafn þitt berast á milli.
Endilega reyndu líka að fá einhvern vin þinn með þér. Það er kannski auðveldara að vera 2 og líka skemmtilegra.
Gangi þér vel með þetta. Hvort sem þú ferð þessa leið eða einhverja aðra. Hafðu augu og eyru hjá þér. Það eru fullt af möguleikum þarna úti. Þú færð kreditstig hjá mér fyrir að gera þetta í stað þess að hanga heima og horfa á imbann:)