Konur hafa jafn mikinn rétt og karlar til að bjóða sig fram á þing og í prófkjör, ef þeim er gert hærra undir höfði en starfsbræðrum sínum, þá er það kynjamisrétti. Málið er að það á að horfa til fólks eftir verðleikum þess, alveg burtséð frá kyni. Það á ekki að þurfa að sjá til þess að sem jöfnust skipting sé á körlum og konum í stjórnunarstöður, ekki ef þær áttu jafnan möguleika á að komast í þær. Ef fleiri karlar sækja um og eiga minni möguleika á að fá starf af því að jafn hæf kona sækir um þá er það ekki sanngjarnt. Allir eiga að eiga jafnan rétt, burtséð frá kyni.
Betur sjá augu en eyru