Þegar ég heyri í útvarpinu, sjónvarpinu, fréttamiðli eða frá vin eða kunningja að morð hefur verið framið fyllist líkami minn af gæsahúð og ég fæ titring í hausinn og hreinlega tárast mjög, mér hefur alltaf þótt vænt um fólk þó það sé ekki skyld mér, fólk í mínu lífi gerir líf mitt fjölbreytilegra og skemmtilegra og mér finnst allt fólk eiga skilið á tilveru rétt hér á jörðu meðal okkar, maður sér og verður vitni að viðtölum við foreldra sem hafa misst börn sin, foreldranir meðan á viðtali stendur yfir geyma stundum tárin innra með sér eins og frosið vatn, þeim líður illa, við getum ekki ímyndað okkur líðan þeirra, foreldranir elskuðust, klæddu barnið í föt, vernduðu það, fóru með það á leikskólann, reyndu að sjá um barnið og vernda það eftir bestu getu en samt getur það komið fyrir að hræðilegt fólk mæti þeim á lífsleið þeirra og hreinlega gangi frá þeim, líf manneskju verður aldrei bætt og það fólk sem ég virkilega stend með í lífi mínu er fólk sem hefur mátt þola, hér á ég erfitt með að sitja orð inn í eyðurnar, vil frekar að fólk hugsi sér þau orð sem gætu passað í raun getum við varla vitað þau sjálf því lífsreynsla eins og þessi að missa barn sitt á einni nóttu skyndilega er hræðileg, verður þú næst ? eða verð ég næstur ? við vitum það víst aldrei og þess vegna ber okkur skylda til að loka menn eins og þessa inni og það ævilangt, Ísland í dag ( 03.08.01 ) þar kom Sigurður Líndal, fangelsismálastjóri og ræddu um fanga á íslandi, þar töluðu þeir um að menn afplánuðu aðeins 3/4 af árafjöldanum eða sú væri reglan, mér finnst þetta heimska! Ég heyrði þá líka tala um að menn þessir ættu konur og börn og frá mínu sjónarhorni fannst mér þeir vorkenna morðingja, morðingjar eiga að sitja inni ævilangt, fólk þetta er sjúkt, mér finnst í lagi að reyna hjálpa þeim ef hægt er en mér finnst líka að réttvísi sé skoðuð í öllum málum, því mál eru misjöfn, sjálfur hlóg ég þegar ég heyrði einnig að foreldrar stúlkunnar í Kópavoginum fengu aðeins 600.000 krónur í bætur hvor, hvert er þjóðfélagið að fara með þessu ? Ég hef og mun aldrei skilja svona fíflagang, best væri að leyfa foreldrum fórnalambs að velja hæfilega ef ekki ævilanga fangavist ef þau fara fram á það eða ætlum við að horfa á morðingja ganga lausum hala og þurfa að búa við þá tilfinningu að næst getur barnið okkar eða við orðið næst. Ég vil að lokum ljúka þessu með því að senda samúðaróskir til fólks sem hefur lent í hræðilegri lífsreynslu eins og þessari og gefa þeim þann styrk í leiðinni og segja við þau að það er til mjög mikið að fólki sem finnst það sama og vill herða refsingar í þessum málum. Ég held það væri upplagt ef allir landsmenn myndu standa saman gegn þessu, skipuleggja stærsta fund sem haldinn hefur verið á Íslandi fara með kerti niðrí bæ og mótmæla því ef ekkert verður vanhafist í þessum málum gæti barnið þitt eða þú orðið næsta fórnarlamb morðingja sem svífst einskis!