Ég fer mjög lítið á þetta áhugamál en mér finnst alltaf bara vera tala um simpsons, Futurama eða Family Guy. Hvað um eitthvað klasík eins og Tomma og Jenna, Andrés Önd og Kalla Kanínu. Það er alltaf fyndið. Ég mundi skrifa sjálfur um þetta en ég gett það ekki þar sem net er ekki nógu gott hjá mér.
Ég er svolítið farin að halda að þú hafir týnt “barninu innra með þér”. Hvað er svona skrýtið að finnast gaman að barnateiknimyndum eins og Tomma og Jenna eða Múmínálfunum þó að maður sé eldri en ellefu ára? Ég er að nálgast tvítugt og horfi ennþá á þessa þætti, enda horfði ég á þá þegar ég var lítil og þetta hafa alla tíð verið með uppáhalds þáttunum mínum. Ég þekki líka fjölda fólks á mínum aldri og eldra sem finnst ennþá gaman af þessum þáttum. Virði alveg skoðun þína, en ég vorkenni samt þeim sem geta ekki lengur notið þess að horfa á það sem þeir horfðu á í æsku.
Haha þú þarft ekkert að vorkenna mér, mér líður alveg vel með að horfa bara á “fullorðins” teiknimyndir. Þett er (eiginlega) einsog að segja að þú vorkennir mér því ég leik mér ekki með action-man kalla lengur, því mér fannst það gaman þegar ég var yngri.
Well ég vorkenni þér bara, action-man kalla, sandkassaleikandi, Tomma og Jenna horfandi 19 ára dreng/stúlkan þín! rsum
Ég dái teiknimyndir og horfi reglulega á myndir á borð við Mulan, Lion King og Monsters Inc.
Ég hins vegar næ því ekki hvernig tvö dýr að klemma sig á músagildrum og kveikja í feldinum á hvoru öðru sé eitthvað sem eðlilegu fullorðnu fólki finnist fyndið.
TinyTim91 er samt með bölvaða stæla, ekki halda að ég sé sammála restinni af því sem drengurinn er að spúa.
'The entire Fleet knows that this man tried to stab me through the neck. And you missed! Butterfingers!'
Restinni af því sem þú segir almennt… t.d. í hinum kommentunum þínum þar sem þú sekkur í barnaskap því þú ert svo upptekinn af því að kalla aðra óþroskaða og sanna eigið ágæti.
'The entire Fleet knows that this man tried to stab me through the neck. And you missed! Butterfingers!'
Sama daemi, hafdi gaman af actionman tegar eg var yngri, og samkvaemt tessum sem eg var ad svara aetti eg ad leika med tad ennta til ad halda i barnid i mer eda eitthvad asnalegt.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..