Af fyrstu 10 sem ég á…..
Þá eru seríur 3,4,5 og 7 frábærar.
Seríur 6,8 og 9 mjög góðar
1 og 2 er góðar og vanmetnar. Þarna var augljóslega markmiðið að gera teiknimyndaþætti fyrir fullorðna. Td. þá sá ég Simpsons fyrst þegar mamma byrjaði að horfa á þá, hún hafði heyrt að þetta væri skemmtilegt af samstarfsmönnum sínum. Foreldrarnir horfðu á Simpsons fyrst, ekki krakkarnir, svo fór öll fjölskyldan að horfa á Simpsons. Húmorinn er jarðbundinn, Homer er ekki nærri því eins vitlaus og þættirnir eru nokkrir frekar dimmir.
10 er lala, langverst af fyrstu 10 samt.
Af seríum 11-18 hef ég ekki séð nóg, 11-13 eru býsna slæmar ef ég man rétt og næstu á eftir eiga að vera ömurlegar en 18 á að vera skref upp á við ef eitthvað er að marka fólkið í kringum mig.