Snilldar fótboltateiknimyndir í japanska anime teiknistílnum. Þegar leikmennirnir urðu betri þá fóru þeir að þróa með sér svona ofurspörk. Þekktast þeirra er “Arnarskotið” sem að alpersónan átti. Það var nánast ógerlegt að verja þetta skot. Bolltinn fór hátt upp í loftið, breyttist í Phoenix fugl og steypti sér á markið. Ef markmaðurinn fór fyrir þetta, þá sviðnuðu fötin af honum, hehe.
Fyrir aðdáendur þessara þátta og forvitna mæli ég með leiknu bíómyndinni Shaolin Soccer sem er alveg eins, bara leikin og meira verið að gera grín að þessu. Hægt er að fá hana textaða með kínversku/japönsku tali eða talsetta á ensku.