Eins og þetta virkar ef ég skil rétt þá eiga Trey og Matt þættina en allur dreifingarréttur liggur hjá Comedy Central. Í Playboy viðtalinu sögðu þeir kumpánar að enginn nema þeir myndi skrifa þættina, ef þeir ákveða að hætta þá verður hætt.
Annars er ég sáttur. Sjáið bara Matt Groenig. Hann seldi Simpsons. Mér fannst Simpsons vera snilld upprunalega en bara þreyttir í dag. En Futurama, það er fínt!
Hafið ekki áhyggjur. Það er betra að fá fáar en góðar seríur af South Park og sjá Matt og Trey fara í önnur verkefni því ég VEIT að þau verða snilld! Ég hef séð allar bíómyndirnar þeirra, fjórar að Baseketball meðtaldri, og þetta var allt gott. Mig hlakkar bara til að sjá hvað þeir gera næst!
BTW. Trey er aðal creative talentinn en Stone framleiðir. Ég held samt að Trey spannist upp við félagsskapinn svo við skulum ekki dissa hann Matt. Þótt hann sé hommalegur hálfviti! :)
Matt sagði við Playboy að hann væri ekkert fyndinn. Nema þegar hann væri með Trey.