Matt Groening segir ennfremur að joðið sé til heiðurs teiknimyndapersónunum Rocky og Bullwinkle sem fullu nafni heita Rocky J. Squirrel og Bullwinkle J. Moose. Þar skírskotar joðið til höfunds þeirra, Jay Ward. Sumir vilja skýra joðið út sem tilvísun í Harvard-vísindamanninn Stephen Jay Gould en sá hefur birst í Simpsons-þætti, auk þess sem margir þeir sem skrifa þættina koma frá Harvard.
Þess má geta að eftir öðrum heimildum að dæma eru nöfn allrar Simpsons-fjölskyldunnar ættuð úr fjölskyldu Groenings, faðir hans hét Homer, móðir hans Marge, systir hans Lisa og fleiri mætti telja til. „Bart“ er einfaldlega stafavíxl á orðinu „brat“ sem þýða mætti sem „krakkaóféti“.
Meira er á reiki hvaðan Simpsons-nafnið sjálft kemur, en bent hefur verið á kvikmynd, Day of the Locust frá árinu 1975, þar sem Donald Sutherland leikur persónuna Homer Simpson sem þykir ekki ólík Hómernum okkar. Önnur skýring hljómar á þá leið að yfirmaður öryggismála hjá kjarnorkuverkinu á Three Mile Island, þar sem versta kjarnorkuslys í sögu Bandaríkjanna varð þann 28. mars 1979, hafi einmitt heitið Homer Simpson! Sá maður hafi svo farið í mál við framleiðendur Simpsons-þáttanna en ekki haft erindi sem erfiði.
Tekið af Vísinda síðu Háskóla Íslands
Moo. Moo. Moo.