Ég hef verið að taka eftir því að mínar daglegu heimsóknir á simpsons síður eru að hætta, eg hef ennþá áhuga á simpsons það er ekki málið, og einnig eru fréttabréfin sem ég fékk hætt að koma. málið er að FOX eru að láta loka öllum síðum sem þeir geta.
Næstum á hverjum degi er ný King of the Hill, X-File, Millennium, eða Simpson’s síða lokuð.
Þetta eru flestar bara saklausar aðdáendasíður sem taka ekkert gjald eða neitt. bara miðla fróðleik og segja fréttir.

fann þessa síðu, og þar eru menn ekki sáttir!

http://www.surfacedamage.com/sites/fist/html /story.html