Gleymt lykilorð
Nýskráning
Tækni

Ofurhugar

Sphere Sphere 1.278 stig
add1 add1 1.052 stig
Rx7 Rx7 1.024 stig
RoyalFool RoyalFool 904 stig
jonkorn jonkorn 776 stig
bluntman bluntman 726 stig
freki freki 718 stig

Stjórnendur

phi phi

Legend of Zelda: Ocarina of Time (30 álit)

Legend of Zelda: Ocarina of Time Mjög flott mynd úr leik sem er almennt talinn bestur allra tíma

jak (4 álit)

jak :/

Fyrsta Leikjatölvan (7 álit)

Fyrsta Leikjatölvan Fyrsta leikjatölvan og hún hét Magnavox Odyssey og var sett á markað árið 1972.
Með henni fylgdu 12 leikjaspjöld, þannig að skipta mátti um tölvuleik með því að setja nýtt spjald í þar til gerða rauf á tölvukassanum.

Og já þarna er verið að spila hinn sí vinsæla ping pong

Silverstone SG01 Evolution (2 álit)

Silverstone SG01 Evolution Fannst seinasta mynd vera alveg hrikaleg( þótt að umræddur kassi sé sæmilega útlítandi og á ágætu verði þá ákvað ég að senda inn nýja mynd með smá umsögn)

Í byrjun sumars ákvað ég að uppfæra vélina mína og umræddur kassi varð fyrir valinu.
Kassinn hýsir eftirfarandi vélbúnað:
Amd Opteron 170
Dfi RS482 INFINITY
2x 1gb cl2 g.skill
seagate 7200.9 160gb
Creative x-fi fps
Ati x1800xt

Það eina sem að ég hef getað fundið að kassanum eftir að hafa notað hann í tæpa fjóra mánuði er að framaná kassanum er tengikví sem að er samsett úr akrýl og samræmist ekki alveg þeim gæðastöðlum sem að silverstone setja sér varðandi aðra þætti í SG01 kassanum.

Helstu tölur varðandi kassann

Efni:Ál, akrýl tengikví, 1.5mm álskel
Litir: Svartur/Silfur
Móðurborð: Micro Atx
Drifstæði:
5.25” x 2 útvær
3.5” x 2 innvær

Kæling:
Bakhlið: 1 x 80mm útblástursvifta auk stæðis fyrir öxulviftu
Hliðar: 1 x 80mm innblástursvifta
Toppur: stæði fyrir 80mm viftu

Stækkunarraufar: 4

Tengikví að framan

USB2.0 x 4
1394 Firewire x 1
Headphone jack x 1
Mic x 1

Aflgjafi: Staðlað ps2 atx[b/]
Þyngd: 3kg
Stærðir: 263 mm (B) x 216 mm (H) x 393 mm (D)


Cooling System Rear

1 x 80mm exhaust fan, 2050rpm, 21dBA
Optional cross-flow fan
Sides 1 x 80mm intake fan 2050rpm, 21dBA
Top 1 x 80mm fan slot
Expansion Slot
4
Front I/O Port

USB2.0 port x 4
1394 Firewire x 1
Earphone jack x 1
MIC x 1
Power Supply Optional standard PS2 (ATX)
Net Weight
3 kg
Dimension 263 mm (W) x 216 mm (H) x 393 mm (D)

Kassinn sjálfur er virkilega kaldur og stuðlar margt þar að einsog t.d. að hdd liggja þvert í kassanum og vifta blæs stöðugt frá þeim, skjákortið dregur kalt loft frá innblástursviftu og raufum á sem að liggja eftir kassanum endilöngum þannig að stærð x1800xt kortisins nær að skipta kassanum nánast í tvennt og auðveldar þarmeð kælingu á opteron örgjörvanum sem að situr undir north-q blómi sem að blæs út til hliðar auk þess að aflgjafinn dregur loft til sín úr kassanum og blæs í gegnum sig.

Kassinn er einungis í meðallagi hljóðlátur og hitinn sömuleiðis enn þegar á það er litið að þetta er kassi sem að leikandi myndi rúma sli/crossfire setup ef að móðurborðsframleiðendur myndu framleiða m-atx borð með þeim möguleikum auk þess að rúma aflgjafa í fullri stærð þá er þessi kassi draumur allra sem að stunda uppfærslur grimmt og vilja ekki þurfa að sitja upp með t.d. shuttle sem að er einungis með aflgjafa sem að passar í shuttle vélar auk þess að geta bara tekið við ákveðnum vélbúnaði þannig að með hverri uppfærslu úr viðmótum sem að hafa verið tíðar seinustu ár (s754,939,am2 t.d. og agp og pci-ex) að þá geturðu haldið kassanum,aflgjafanum og látið annað flakka.

Heimasíða framleiðenda

http://www.silverstonetek.com/products-sg01Evolution.htm

Kenwood Serie 21 Heimabíó (5 álit)

Kenwood Serie 21 Heimabíó Ég hef aldrei séð jafn mikið eftir því að hafa selt nokkurn hlut og þessar græjur hérna.
Ég keypti þessar græjur á sýnum tíma fyrir alla fermingarpeningana mína plús þá sem ég hafði safnað í langan tíma. Ég man alltaf eftir því þegar ég og pabbi minn fórum í leiðangur í bæinn til að kaupa græjur. Við fórum í allar þessar helstu hljómtækjaverslanir og enduðum í Takti en þar voru þessar græjur keyptar. Þær unnu EISA verðlaunin sem besta heimabíó árið ‘98-’99 minnir mig. Ef ég væri með símanúmerið hjá þeim sem ég seldi þær þá væri ég örugglega búinn að hringja í hann og spyrja hann hvort að hann væri ekki til í að selja mér þær til baka!

Rawk Hawk (3 álit)

Rawk Hawk Þetta er töffarinn Rawk Hawk frá Gamecube titlinum Paper Mario: The Thousand Year Door… bara svona uppá gamanið….

Talvan mín (5 álit)

Talvan mín Já þetta er talvan mín, eg minni svo á að hún er til sölu :)

Windows vista (15 álit)

Windows vista Nýjasta útgáfan af Windows

Itunes 7 (9 álit)

Itunes 7 Hvað finnst ykkur um litaskiptin á Itunes 7 ? Mér finnst blá bara mun flottara.

Windows Theme-ið mitt (16 álit)

Windows Theme-ið mitt Ég breytti um windows dæmið með TuneUp forritinu. Langaði til þess að deila því með ykkur :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok