Sælir. Langaði að spyrja að einu. Hvernig snúru þarf ég að kaupa og hvar fæst hún ef mig langar t.d. að horfa á mynd sem ég á í tölvunni minni, í sjónvarpinu? Það dugar fyrir mig að ég geti bara kveikt á tölvuskjánum sjálfum í sjónvarpinu.

Hef séð svona stundum þar sem manneskja er að spila mynd í tölvunni, sem manneskjan tengir við sjónvarpið, en getur samt verið í tölvunni á sama tíma, s.s. í rauninni eru 2 skjáir.. Það væri ekki verra, en eins og áður sagði, þá dugar fyrir mig að sjá bara tölvuskjáinn sjálfan í sjónvarpinu.

Veit einhver hvernig snúra þetta er? Ef þið getið fundið mynd af henni væri það brilliant, og hvar hún fæst og á hvaða verði? =)