Leitartextakassinn ásamt tökkunum á google.com hefur stækkað!
Hrifin virka eingöngu í Google Chrome hjá mér, en ég hef frétt af svipuðum undrum og stórmerkjum í Firefox, þótt ég sjái ekkert því líkt í minni útgáfu, né heldur Opera eða IE.
YouTube hefur tekið breytingum í stórum skrefum undanfarið, sömuleiðis.
Aldeilis hvað veröldin breytist hratt þessa dagana.
Bætt við 9. september 2009 - 22:01
Nákvæm rannsóknarvinna gefur engar skýringar á fyrirbrigðinu.