Nú veit ég ekki hvernig þessi síða virkar, en ég get lofað þér að tímamunurinn er servertime, ekki clienttime. Þar af leiðandi getur þú EKKI hoppað yfir biðtímann án þess að hakka þig inn á serverinn og breyta klukkunni þar.
Hins vegar gætu einhver önnur trick virkar. Ef þú ert með routerinn stilltan á að gefa þér nýja IPtölu við hverja tengingu þá myndi duga að aftengjast netinu og tengjast aftur, þá platarðu serverinn með beiðni frá nýrri IPtölu sem hefur ekki horft á þátt nýlega. Eða kannski dugar það sem annar notandi benti á, að refresha bara nokkrum sinnum. Það er væntanlega ekki feature á síðunni, heldur bögg :P
Peace through love, understanding and superior firepower.