Tollfrjáls farangur
Ferðabúnaður og annar farangur
Við komu til landsins mega ferðamenn, sem búsettir eru á Íslandi, hafa með sér tollfrjálst þann farangur, t.d. fatnað og annan ferðabúnað, sem þeir fóru með til útlanda.
Ferðamenn mega ennfremur hafa meðferðis tollfrjálst varning sem fenginn er í ferðinni eða í tollfrjálsri verslun hér á landi (við brottför eða heimkomu) fyrir allt að 65.000 kr. miðað við smásöluverð á innkaupsstað. Verðmæti hvers hlutar má þó ekki vera meira en 32.500 kr.; sé verðmæti hlutar meira en 32.500 kr., getur viðkomandi notið tollfríðinda miðað við þá fjárhæð og greitt innflutningsgjöld af því verðmæti sem umfram er.
Börn sem eru yngri ern 12 ára mega hafa tollfrjálst verslunarvörur fyrir 32.500 kr.
Tollfrelsi matvara, þ.m.t. sælgæti, er takmarkað við 18.500 kr. verðmæti og 3 kg þyngd.
Ferðamenn geta ekki framselt rétt sinn til tollfríðinda; tveir eða fleiri ferðamenn geta ekki lagt saman heimildir sínar til tollfrjáls innflutnings, t.d. til að flytja tollfrjálst inn hlut sem er meira en 32.500 kr.
Semsagt alls 65.000 og hver hlutur ekki meira en 32.500