Hæhæ, ég vissi ekki hvert ég átti að senda þetta..
En mig vantar hjálp við að laga Ipodinn minn, ég á Ipod Mini 6gb og hann er bara gjörsamlega frosin og hefur reyndar verið það í marga mánuði, er bara fyrst að pæla í því núna fyrir skólann! :)
En allaveganna, þegar ég sting Ipodinum í samband við tölvuna þá kemur bara upp frosið batterí og talvan finnur ekki Ipodinn..
Og svo þegar ég reyni að fara eftir leiðbeiningum á netinu halda inní MENU og SELECT tökkunum þá kemur upp apple merkið og svo mynd af dauðum Ipod. :S
Ef einhver getur sagt mér hvernig maður lagar þetta þá væri það æðislegt! :)