Í fyrstalagi þá er þetta mjög illa skrifað og torskiljanlegt, erfitt að átta sig á því hvað þú ert að meina.
En til að svara spurningu þinni þá er mjög erfitt að einangra eitthvað ákveðið úr lagi nema það sé mun dýpra en allt hitt í laginu eða mun hærra. Semsagt einangra ákveðna tíðni af laginu þannig *nánast* bara bassinn heyrist, *nánast* bara skrækur sólo gítar. Reyndar er stundum hægt að bera saman rásirnar(ef lagið er stereo) og þá er stundum hægt að einangra út það sem er eins á báðum rásum. T.d. ef það er rythm gítar í hægri en lead í vinstri er stundum hægt að sýa þá út ef þeir eru bara á sitthvori rásinni. Eftir situr þá hljómborð, trommur, vocal og svoleiðis.
Þar sem trommur(taktur) er mjög breiður og nær yfir stórt tíðnis svið, allt frá djúpri bassatrommu uppí crash, hi-hat, cymbalana er erfitt að skera það út með því að einangra ákveðna tíðni. En mergur málsins hér að ofan er sá að það er ekki bara hægt með einföldu forriti að taka út hvert hljóðfæri fyrir sig nema þau séu öll a sitthvori rásinni eða þetta sé í einhverju upptöku forriti og ekki búið að rendera þetta í mp3, wma, wav, ogg.. o.s.fr.
Vona að þetta hafi hjálpað þér.
Þar sem ég er ekkert voðalega vel að mér í þessum efnum gætu verið einhverjar staðreyndarvillur í þessu, þannig þetta er birt með fyrirvara um villur.
Sé einhver sem veit betur má hann leiðrétta mig í þessum málum.