Sko, nær undantekningalaust byrja þær með ekkert í charm, og ef þú giftir þær þá fær brúðguminn trait sem er wife is a wretch, sem sé eiginkonan er herfa.
Allir agentar sem þú þjálfar byrja yfirleitt með 1-3 level í sínu skilli, stundum byrja þeir með trait sem lækkar þetta, allt í lagi með það, en prinsessur byrja nær alltaf með núll. Þær fæðast herfur.
Segjum að þú sért með assassin sem er með trait master assassin +5 agent skill. Þú segir honum að myrða óvina prinsessu. Af einhverjum undarlegum ástæðum reynir launmorðinginn ávalt að lauma snáknum sínum á milli fótanna á prinsessunum sem hann er að reyna að drepa. Nema núna mistekst honum og snákurinn vill ekki prinsessuna sem er of mikil herfa og skríður í burtu. Sem sé mission failed, og gaurinn sem gerði ein mistök missir master assassin traitið sitt og er aftur orðinn byrjandi.
Sem er náttúrulega algjört bull.
Ef þú spilar leikinn nógu lengi tekurðu eftir því að gaurarnir eignast aldrei fleiri en fjögur börn. Stundum færri en aldrei fleiri.
Fyrst ég er kominn á skrið. Hvað er málið með krossfarahermenn? Maður er að sigla frá Englandi til Jerúsalemar og þarf að sigla fyrir Spán, og mönnum finnst það ekki ganga nógu hratt þannig að þeir stökkva útbyrðis, og hvað synda?