Í nótt kom í ljós að Hitler verður EKKI í Civilization IV: Warlords. Mér til mikilla vonbrigða. Samkvæmt þýskum (og austurrískum) lögum má ekki birta myndir af Nasistum eða Hitler, og Civilization er með meiri sölu í Þýskalandi en nokkru öðru Evrópulandi; Kanada er með mesta sölu, þar á eftir Bandaríkin og svo Þýskaland. Þá myndi öll sala í Þýskalandi vera bönnuð og Firaxis myndi hætta að selja leikinn örugglega!

En ég er kominn með upplýsingar um nýjar þjóðir, ný scenarios og fleira.

Það hefur verið upplýst að Skandinavar koma nýir, einnig Gallar og loks Karþagóar. Hinar 3 þjóðirnar eru ekki komnar.

10 nýir leiðtogar, 10 nýir hermenn, 3 ný undur, 3 nýjar resources og 6 scenarios; En ekki WWII. Þessi sex eru Kínverska sameiningin, Pelopsstríðið í Grikklandi, sigrar Alexanders, Upphaf Rómarveldis, Víkingaöldin* og endalausir sigrar Genghis Khans.

*Ísland verður á kortinu!!!

Samkvæmt heimildum Apolyton kemur leikurinn út snemma í sumar.