Meiðslavandræði Þjóðverja
Það hafa margir verið að detta útúr lestinni hjá Þjóðverjum upp á síðkastið vegna meiðsla. Jens Nowotny hershöfðinginn í vörn þjóðverja skaddaði liðbönd í hné gegn Man Utd, Christian Wörns meiddist einnig, Marko Rehmer er lítillega meiddur á öxl og ekki víst hvort hann geti tekið þátt 100% í undirbúningi þjóðverja fyrir HM og á HM, einnig meiddist Sebastian Deisler á hné í vináttuleiknum gegn Austurríkismönnum og ekki er víst með þáttöku hans á HM en Michael Skibbe aðstoðarþjálfari þjóðverja sagði eftir leikinn að þetta væri ekki eins alvarlegt og verið sé að tala um.