Þýski varnarjaxlinn Christian Wörns verður að sitja heima og horfa á HM í kassanum í sumar. Wörns sem talinn er vera einn af fjórum bestu varnarmönnum Þýskalands hefur átt við meiðsli að stríða á hné. Rudi Völler landsliðsþjálfari Þjóðveja hélt í vonina lengi vel, en þurfti að taka þessa ákvörðun í gær eftir að hafa fengið skýrslu frá lækni landsliðsins.
Varnarmaður Bremen Frank Baumann mun taka stöðu Wörns.