Læknisskoðun á þýska varnarjaxlinum Jens Nowotny leiddi það í ljós að liðband í hné er tognað. Nowotny verður því ekki með á HM í sumar eins og til stóð og mun heldur ekki spila með liði sínu Leverkusen í úrslitaleik meistaradeildarinnar á móti Real Madrid. Rudi Völler landsliðsþjálfari Þýskalands sagði þetta gráti næst vegna þess að Nowotny hafði verið mikilvægur hlekkur í áformum hans fyrir sumarið og mikill missir fyrir þjóðina alla. Nowotny er ekki sá fyrsti sem dettur út úr hópnum heldur hefur Mehmet Scholl einnig dregist út úr honum sökum lélegs leikforms. Einnig eru Sebastian Deisler, Marko Rehmer og Christian Ziege allir verulega tæpir og verður því á brattann að sækja verði þeir ekki klárir í slaginn þegar að þar af kemur.
heimildir gras.is HM kveðjur.Stebbi