Englendingar náðu aðeins að gera 1-1 jafntefli við Suður Kóreumenn í æfingaleik liðanna í Kóreu í morgun. Michael Owen kom Englendingum yfir á 26. mínútu en Ji-Sung Park jafnaði fyrir Kóreumenn á 52. mínútu. Sven Erikson stillti upp leikaðferðinni 4-3-3 sem er frekar óvenjulegt fyrir enska landsliðið en Michael Owen, Emilie Hesky og Darius Vassel léku sóknarlínuna meða Owen fremstan. Owen var klassa fyrir ofan Heskey og Vassel í leiknum en Martin Keown, Teddy Sheringham og Wes Brown gerðust allir sekir um mistök og ollu vonbrigðum. Það er algjört lykilatriði fyrir Sven að Kieron Dyer og David Beckham verði tilbúnir áður en keppnin hefst því með þetta lið eru Englendingar frekar tæpir á að ná einhverjum árangri.
Sven tilkynnir lokahópinn í dag.
RS