Sko, við getum miðað við hver kom mest í verk af stefnumarkmiðum sínum. Það gæti þó þýtt að við endum með Andrew Jackson eða Polk í efsta sæti. Já, eða F.D.R.
En þá erum við einmitt að blanda hugmyndafræðinni í þetta. Ég lít svo á að Ríkið eigi að gera sem minnst, og því er ekki virðingarvert að koma sem mestu í verk.
Annars, ef þú neyðir manneskju til þess að kaupa vörur á hærra verði þá ertu að neyða hana til þess að vinna meira til þess að eiga efni á þessari vöru sem er í raun ekkert annað en nauðungarvinna. Málið er að báðar hliðar voru fylgjandi frelsisskerðingu, bara á sitthvoru sviðinu.
Við getum vel litið svo á að þrælahald sé alvarlegra brot heldur en tollar, en við verðum þó að gera okkur grein fyrir því að þetta stríð snerist alls ekki um frelsi einstaklingsins, heldur frelsi á þeim sviðum þar sem hagsmunaaðilar sáu að þeir myndu græða. Iðnríkin fylgjandi tollum til að verja stálframleiðslu sína en á móti þrælahaldi vegna þess að þau höfðu ekki efni á því að sjá þrælum fyrir allt árið, það þurfti að vera auðvelt að segja fólki upp tafarlaust og senda þau á götuna ef markaðurinn sveiflaðist til.
Suðurríkin voru með frjálsri verslun vegna þess að þau óttuðust að Evrópa myndi setja tolla á BNA ef BNA setti tolla á Evrópu og þar með myndi grunnurinn fyrir landbúnaðarframleiðslu þeirra og útflutningi hrynja. Þeir voru hins vegar fylgjandi þrælahaldi þar sem það var hagkvæmt á stórum ekrum.
annars er gaman að einu quoti frá lincoln :)
Lincoln, Fourth Lincoln-Douglas Debate (18 September 1858)
I am not, nor ever have been in favor of bringing about in any way the social and political equality of the white and black races. I am not nor ever have been in favor of making voters or jurors of negroes, nor qualifying them to hold office, nor to intermarry with white people; and I will say in addition to this that there is a physical difference between the white and black races which I believe will ever forbid the two races living together on terms of social and political equality. … And inasmuch as they cannot so live, while they do remain together there must be the position of superior and inferior, and I as much as any other man am in favor of having the superior position assigned to the white race.
Þó svo að maður verði að gera sér grein fyrir því að kynþáttahyggja var almennt viðurkennt álit þar til eftir WW2