mjólkin er bara ekkert dýr
Enda var ég aldrei að segja að mjólkin væri dýr. Ég sagði bara að ríkið þvingaði okkur til þess að kaupa hana með því að þvinga okkur til þess að kaupa hluta af mjólkinni.
Ég var að benda á að verðið í búðinni er ekki hið raunverulega verð. Þú verður einnig að reikna með niðurgreiðslum ríkisins því það er í raun ekkert nema peningur sem rennur úr þínum vasa, í gegnum hendur ríksins (þar sem sumt fer í þess eigin vasa á meðan annað fer hreinlega til spillis) og síðan fer hann í hendur bænda.
Ég var aldrei að tala um gos og ég var aldrei að tala um kranavatn, en gos er eins hátt og það er vegna þess að ríkið skattlegur það svo rosalega.
Þú ættir að vera þakklátur fyrir þá góðu bændavörur þú getur keypt hér á Íslandi
Hvers vegna í ósköpunum? Þetta eru viðskipti. Í viðskiptum þá þarfnast báðir aðilar hvers annars, því finnst mér frekar brengluð hugmynd að annar þeirra eigi að vera á hnjánum að þakka hinum fyrir göfuglyndi hans og góðmennsku að leyfa mér að kaupa íslenskar bændavörur.
Eða ertu kannski að meina að ég eigi að vera þakklátur fyrir það að ríkið skuli banna mér að kaupa landbúnaðar vörur frá bændum af öðru þjóðerni? (yes, ég á að vera þakklátur fyrir nasisma)
Ef þú ert ósáttur með eitthvað sem ég sagði, bentu mér þá endilega á það í stað þess að kalla mig vegg og segja að ég sé að skíta yfir annað fólk. Ég er ekki að skíta yfir neinn, ég vil bara hafa frelsi til þess að versla landbúnaðar vörur af hverjum þeim sem ég vil.
Ég er ekki að banna íslenskum bændum að starfa og ég er ekki að banna þér að versla við þá. Ég er bara að gagnrýna það að þér finnist rétt að neyða mig til þess að versla við bændur sem þér finnst að ég ætti að versla við þegar ég vil alls ekki stunda viðskipti við. (Fyrir utan þennan óhagkvæma verðmætaeyði sem þú setur inn í dæmið sem milliaðila.)
Ef þessar afurðir eru svona frábærar, og ef þetta er svona góð stétt sem gerir alls svo rétt og vinnur afburðavinnu, af hverju þarf þá ríkið að vernda hana hægri vinstri?
Af hverju þarf að niðurgreiða hana og af hverju þarf að banna bændum í öðrum löndum að versla við okkur?
Þessi mynd sem þú ert að teikna upp meikar ekki sens.