Bara smá dæmi um að guð elskar alla menn:
1Þú, mannsson, tak þér hvasst sverð. Skalt þú hafa það fyrir rakhníf og lát það ganga um höfuð þitt og vanga. Tak síðan vog og skipt hárinu í sundur.
2Einn þriðjunginn skalt þú í eldi brenna í miðri borginni, þá er umsátursdagarnir eru liðnir, annan þriðjunginn skalt þú taka og slá með sverði hringinn í kringum
hann, og síðasta þriðjungnum skalt þú dreifa út í vindinn, og ég mun vera á hælum þeim með brugðnu sverði.
3Því næst skalt þú taka fáein hár og binda þau í skikkjulaf þitt.
4Og af þeim skalt þú enn taka nokkur og kasta þeim á eld og brenna þau á eldi. Þaðan mun eldur koma yfir allt Ísraels hús. Og seg við allt Ísraels hús:
5,,Svo segir Drottinn Guð: Þetta er Jerúsalem, sem ég hefi sett mitt á meðal þjóðanna og lönd umhverfis hana.
6En hún hefir sett sig upp á móti lögum mínum með meira guðleysi en heiðnu þjóðirnar og móti boðorðum mínum meir en löndin, sem umhverfis hana eru, því að
þeir hafa hafnað lögum mínum og eigi breytt eftir boðorðum mínum.
7Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Af því að þér hafið verið þrjóskari en heiðnu þjóðirnar, sem umhverfis yður búa, eigi breytt eftir boðorðum mínum, né haldið
lög mín, og jafnvel ekki farið eftir lögum heiðnu þjóðanna, sem umhverfis yður eru,
8fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, nú vil ég rísa gegn þér og framkvæma dóma í þér miðri í augsýn þjóðanna.
9Og ég vil gjöra þér það, sem ég aldrei hefi áður gjört og mun ekki hér eftir gjöra, vegna svívirðinga þinna.
10Þess vegna skulu í þér feður eta börn sín og börnin feður sína, og ég vil framkvæma dóma á þér og dreifa leifum þínum í allar áttir.
11Fyrir því, svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn Guð: Af því að þú hefir saurgað helgidóm minn með öllum viðurstyggðum þínum og öllum svívirðingum
þínum, þá vil ég einnig útskúfa þér, ekki líta þig vægðarauga og ekki sýna neina meðaumkun.
12Einn þriðjungurinn af þér skal deyja af drepsótt og verða hungurmorða í þér miðri, annar þriðjungurinn skal fyrir sverði falla umhverfis þig, og síðasta
þriðjungnum skal ég tvístra í allar áttir, og ég mun vera á hælum þeim með brugðnu sverði.
13Og ég skal úthella allri reiði minni og láta heift mína hvíla yfir þeim, og ég skal hefna mín. Þeir skulu þá sanna, að ég, Drottinn, hefi talað þetta í afbrýði minni,
þá er ég næ að úthella heift minni yfir þá.
14Og ég skal gjöra þig að auðn og að háðung meðal þjóðanna, sem umhverfis þig búa, já, í augum allra, sem fram hjá ganga.
15Og þú skalt verða að háðung og spotti, til viðvörunar og skelfingar þjóðunum, sem umhverfis þig búa, þá er ég í reiði og heift læt dóma yfir þig ganga og með
áköfum refsingum. Ég, Drottinn, hefi talað það.
16Þegar ég hleypi á þá hungursins skæðu og eyðileggjandi örvum, þær er ég mun senda yður til að tortíma yður, og ég magna hungrið meðal yðar, þá mun ég
sundurbrjóta staf brauðsins fyrir yður
17og senda í móti yður hungur og óargadýr til þess að gjöra yður barnlausa, og drepsótt og blóðsúthelling skal geisa hjá þér, og ég skal hafa sverðið á lofti yfir
þér. Ég, Drottinn, hefi talað það.``
Þetta er vissulega falleg og hlýleg lesning…..engin hefnd eða illindi….barasta gleði og ánægja með ALLA MENN PUNKTUR!!!