Skv. þessari mynd á lundur.net þá virðast þeir ætla að hafa hellings grænt svæði í kringum þessar blokkir þannig að ég get ekki beint verið á móti þessu. Það er svipað dæmi nálægt þar sem ég á heima, lúxusblokkir með mjög flottum stórum görðum í kring og það er mjög fallegt að labba þar í gegn. Einhvers staðar verður fólk líka að búa. Það er ekki endalaust hægt að byggja lengra út heldur þarf líka að þétta byggð.