Alveg rétt. Það er ekkert meira íhald heldur en Sjálfstæðisflokkur.
Ég vil sjálfur samkeppni á sem flestum sviðum og sem minnstann ríkisrekstur (í anda Adam Smith).
Ég vil að ríkið einbeiti sér að heilbrigðisþjónustu, menntun, félagslegri þjónustu og löggæslu (í anda Adam Smith).
Ég vil minnkaða tolla og alþjóðahyggju (í anda Adam Smith).
Þess vegna kýs ég ekki Sjálfstæðisflokkinn.
Neinei hvað fáum við. Niðurgreiddan landbúnað, einokun eða fákeppni á flestum sviðum, stærsta ríkisbákn í OECD (per kap.), lamaða löggæslu, svik í félagslegri þjónustu, samþættingu valdþátta sem er óheyrð á vesturlöndum, skattpíningu, o.fl. o.fl.
??????Frjálslyndi??????? Ekki hjá Sjálfstæðisflokknum.
Ekki það að Ísland sé illa statt. En það er vegna þess hversu hart íslendingar hafa lagt að sér að gera það búsællegt. Tvær fyrirvinnur með tvær vinnur hjá kynslóð eftir kynslóð hefur skapað okkur þessi lífskylirði. Ekki fjálslyndi Sjálfstæðisflokks.<BR